Vaknaði og féll svo aftur í dá 14. mars 2007 18:45
Læknar í Bandaríkjunum standa ráðþrota frammi fyrir ráðgátunni um konuna sem vaknaði úr 6 ára dái, vakti í 3 daga og féll síðan aftur í dá. Þeir kunna engar skýringar á því hvað hafi vakið hana og síðan valdið því að hún féll aftur í dá. Christa Lilly er 49 ára. Fyrir sex árum fékk hún hjartaáfall og síðan heilablóðfall og féll í dá. Augu hennar voru opin en hún gerði sér á enga grein fyrir umhverfi sínum. Þegar hún svo vaknaði óvænt fyrr í þessum mánuði mundi hún síðast eftir heilablóðfallinu og síðan ekki meir. Þó hafði hún fjórum sinnum áður rankað við sér í mjög skamman tíma. Móðir Lilly, Minnie Smith, hefur annast hana síðustu 6 árin. Hún segist hafa vaknað á sunnudagsmorgun eins og hvern annan morgun. Farið inn til dóttur sinnar og boðið henni góðan dag. Hún hafi þá svarað. Lilly var í fyrstu fullviss um að nú væri árið 1986 og George Bush eldri væri forseti. Börn hennar, þar á meðal 12 ára dóttir hjálpuðu henni að átta sig. Síðan hún féll í dá hefur Lilly orðið amma. Hún á nú 3 barnabörn. Christa talaði við fréttamann CBS og sagði þetta dásamlegt og sagðist mjög glöð. Randall Björk, taugalæknir, segir þetta kraftaverki líkast. Allt sé þetta hið dularfyllsta og hann geti ekki skýrt þetta. Hamingjan var þó skammvinn og þremur dögum eftir að hún vaknaði féll Christa Lilly aftur í dá.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira