Tímamótasamningur Evrópusambandsins 9. mars 2007 12:08
Tímamótasamningur um loftslagsmál var samþykktur núna rétt fyrir hádegið af 27 leiðtogum ríkja Evrópusambandsins sem sitja loftslagsráðstefnu í Brussel. Kanslari Þýskalands, Angela Merkel, lagði samkomulagið fyrir ráðstefnuna í morgun og hvatti leiðtogana til að skrifa undir en þar er gert ráð fyrir að ekki minna en 20 prósent af orkunotkun sambandsríkja komi frá endurnýjanlegum orkugjöfum, meðal annars vind- og sólarorku. Samkomulagið er málamiðlun en hörð andstaða hefur verið við slíkt samkomulag frá ákveðnum ríkjum. Einhver sveigjanleiki er inn í samningnum svo þau ríki sem eru háð kjarnorku, eins og Frakkland og Tékkland, eða kolum, eins og Pólland, láti til leiðast og skrifi undir samkomulagið. Leiðtogar fátækari ríkja Austur-Evrópu telja að það yrði þeim dýrt að standa við markmið samkomulagsins. Angela Merkel vonast til að með þessu skapist þrýstingur á Bandaríkin og önnur iðnríki til að fylgja á eftir Evrópusambandinu í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Í gær náðu 27 leiðtogar Evrópusambandsins samkomulagi um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 20 prósent fyrir 2020, miðað við losunina eins og hún var árið 1990, og buðust til að fara upp í 30 prósent ef aðrar þjóðir gerðu slíkt hið sama. Merkel lýsti því sem risaskrefi fram á við.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Sjá meira