Kobe Bryant tók út bann í nótt 8. mars 2007 04:27 Tekur Kobe Bryant gremju sína út á Philadelphia í beinni á Sýn á föstudagskvöldið? NordicPhotos/GettyImages
Kobe Bryant hjá LA Lakers tók út eins leiks bann í nótt þegar lið hans steinlá á útivelli fyrir Milwaukee Bucks 110-90 á útivelli. Bryant fékk bannið fyrir að slá til Marco Jaric hjá Minnesota Timberwolves í fyrrinótt. Atvikið var nánast nákvæmlega eins og þegar Bryant fékk bann fyrr í vetur fyrir að slá til Manu Ginobili hjá San Antonio. Bryant var þá, líkt og í fyrrinótt, að baða út höndunum í loftinu eftir að skot hans hafði verið varið - og gaf hann bæði þeim Ginobili og Jaric hressilegt kjaftshögg í kjölfarið. Phil Jackson þjálfari Lakers kom Bryant til varnar og sagði handapat leikmannsins vera þátt í leik hans til að reyna að veiða villur á andstæðinga sína, en aganefnd deildarinnar var á öðru máli og dæmdi hann aftur í eins leiks bann. Tilkynningunni fylgdu einnig þau skilaboð að Bryant skildi passa sig á svona tilþrifum í framtíðinni, því ef hann yrði uppvís að þessu aftur fengi hann þyngri refsingu. Rétt eins og í fyrri leiknum sem Bryant var ekki með vegna leikbannsins, tapaði Lakers-liðið leiknum stórt. Leikbannið er hinsvegar alls ekki góð tíðindi fyrir næstu andstæðinga Lakers þegar Bryant kemur úr banninu ef marka má fyrra tilvikið, því þá tók hann gremju sína út í leiknum á eftir. Það gerði hann í fyrra skiptið gegn Boston Celtics, þar sem hann skoraði 43 stig, hirti 8 fráköst og gaf 8 stoðsendingar. Hann hitti líka úr 7 af 9 þristum sínum í þeim leik. Liðið sem fær það óöfundsverða hlutskipti að mæta Bryant í næsta leik er Philadelphia 76ers, en svo skemmtilega vill til að sá leikur verður einmitt sýndur beint á Sýn á miðnætti á föstudagskvöldið.
NBA Mest lesið Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Fótbolti Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Fótbolti Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Körfubolti Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Enski boltinn Tuchel um hetjuna Kane: „Það sem hann býst við af sjálfum sér“ Fótbolti Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni Íslenski boltinn „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn „Frábært að fá Martin aftur“ Körfubolti „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Körfubolti Sjokkið breyttist í ævintýri Handbolti Fleiri fréttir „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Sjá meira