Bandaríkin ætla að sitja ráðstefnu Íraka 28. febrúar 2007 09:00 Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. MYND/AFP
Bandaríkin hafa staðfest að þau muni sækja ráðstefnu sem stjórnvöld í Írak ætla sér að halda í Apríl. Á henni verða meðal annars fulltrúar frá Íran og Sýrlandi ásamt fulltrúum átta ríkustu þjóða heims. Á fundinum á að leita leiða til þess að bæta ástandið í Írak og draga úr spennunni á svæðinu í kring. Bandaríkin hafa undanfarið deilt hart á Írana og Sýrlendinga og sakað þá um að styðja við bakið á uppreisnarmönnum í Írak. Bandaríkin hafa áður hafnað viðræðum með Írönum og Sýrlendingum. Fundurinn myndi verða ráðherrafundur og yrði í framhaldi af viðræðum starfsmanna í utanríkisþjónustum landanna sem eiga að fara fram í Bagdad í marsmánuði. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að Írakar færu alfarið með stjórn mála á fundinum sem væri að þeirra frumkvæði. Töluverð pressa hefur þó verið á stjórn George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, að hefja viðræður sem Íran og Sýrland eiga aðild að. Skýrsla vinnuhóps sem greindi ástandið í Írak lagði það til en Bush ákvað að taka ekki mark á þeim tillögum. Ákvörðun Bandaríkjanna um að taka þátt í fundinum þykir því bera merki um að afstaða þeirra til Írans sé að breytast.
Erlent Fréttir Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Innlent Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Innlent Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Erlent Fleiri fréttir Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Sjá meira