Óvíst um framtíð Prodis 22. febrúar 2007 12:45
Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, sagði af sér í gærkvöldi eftir aðeins 10 mánuði í embætti. Ríkisstjórn hans tapaði atkvæðagreiðslu um utanríkismál á ítalska þinginu í gær. Óvíst er hvort Ítalíuforseti samþykkir afsögn Prodis. Ríkisstjórn Prodis situr áfram þar til annað verður ákveðið. Giorgio Napolitano, Ítalíuforseti, tók við afsögn forsætisráðherra í gærkvöldi. Hann gæti samþykkt hana og gefið öðrum færi á að mynda nýja stjórn. Napolitano gæti einnig boðið Prodi að sitja áfram og mynda nýja stjórn með öðrum flokkum á þingi. Ef þessir kostir hugnast forsetanum ekki gæti hann boðað til kosninga en það er þó talið ólíklegt. Viðræður við Prodi og forvígismenn annarra flokka hófust í morgun. Kveikjan að afsögn forsætisráðherrans var atkvæðagreiðsla um umdeildt frumvarp hans um að auka hernaðarþátttöku Ítala í Afganistan. Það tók einnig til stækkunar á herstöð Bandaríkjamanna á norðurhluta Ítalíu, en þeim áformum hefur almenningur mótmælt harðlega. Frumvarpið var fellt og munaði tveimur atkvæðum að það fengist samþykkt. Fyrir atkvæðagreiðsluna sagði Massiomo D´Alema, utanríkisráðherra Ítalíu, að svo gæti farið að ríkisstjórnin segði af sér fengist frumvarpið ekki samþykkt. Um leið og það var fellt krafðist stjórnarandstaðan þess að ríkisstjórnin viki. Stjórnmálaskýrendur spáðu því strax eftir kosningarnar í fyrra að þessi ríkisstjórn níu vinstriflokka yrði ekki langlíf. Reyndar hafa fáar ríkisstjórnin tórað út kjörtímabil sitt á Ítalíu frá Seinni heimsstyrjöldinni. Ríkisstjórn Prodis er sú sextugasta og fyrsta á sextíu og tveimur árum.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira