Íran: Óttast ekki árás Bandaríkjamanna 21. febrúar 2007 13:15
Ali Larijani, aðalsamningamaður Írana í kjarnorkudeilu þeirra við vesturveldin, segir stjórnvöld í Teheran ekki óttast árás Bandaríkjamanna. Vesturveldin komi ekki til með að beita hörku í deilunni. Frestur sá sem Sameinuðu þjóðirnar gáfu Írönum til að hætta auðgun úrans rennur út í dag. Larijani átti í gær fund með fulltrúum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar í Vín í Austurríki. Hann sagði eftir fundinn að samningaleiðin ein væri fær til lausnar deilunni. Búist er við að gripið verði til refsiaðgerða um leið og frestur Sameinuðu þjóðanna rennur út í dag. Larijani varaði við því að tekið yrði á Írönum með óskynsamlegum hætti, öllum slíkum aðgerðum yrði svarað með viðeigandi hætti. Hann ítrekaði að stjórnvöld í Teheran væru ekki tilbúnir að samþykkja skilyrði vesturlanda fyrir viðræðum. Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, sagði í gær að vestrænar þjóðir ættu sjálfar að hætta kjarnorkuvinnslu áður en þær byðu Írönum til viðræðna. Ekki eru allir Íranar á sama máli og forsetinn. Einn smærri flokka á íranska þinginu hvetur ráðamenn til að hugsa sinn gang. Flokkurinn hvetur til umbóta. Flokksmenn spyrja hvers vegna áherslan hjá forsetanum sé þessi og hvetja til þess að orðið verði við kröfum Sameinuðu þjóðanna til að forða því að önnur ályktun verði samþykkt gegn Íran og að gripið verði til refsiaðgerða. Fram kemur á fréttavef BBC að þetta er í fyrsta sinn sem glittir í deilur um málið hjá Írönum sjálfum. Bandamenn forsetans voru þó fljótir að banda á að þarna væru skósveinar Bandaríkjamanna á ferð og ekkert að marka þá.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira