Upphitun fyrir Real Madrid - Bayern Munchen 20. febrúar 2007 16:33 NordicPhotos/GettyImages
Leikur Real Madrid og Bayern Munchen á Bernabeu í kvöld verður sýndur beint á Sýn Extra klukkan 19:30 í kvöld. Þetta verður 17 leikur liðanna í Evrópukeppni og þegar sagan er skoðuð er ljóst að þýska liðið hefur nokkuð tak á því spænska. Liðin hafa mæst sex sinnum í Evrópukeppni meistaraliða og tíu sinnum í Meistaradeildinni - alls sextán sinnum. Bayern hefur unnið hvorki meira né minna en níu af þessum leikjum, aðeins tvisvar hefur verið jafntefli og Real hefur unnið fimm. Allir sigrar Real gegn Bayern hafa komið á heimavelli, þar sem liðið hefur unnið fimm, gert eitt jafntefli og tapað tveimur. Real hefur þó sótt í sig veðrið í síðustu viðureignum liðanna og hefur unnið tvo síðustu heimaleiki sína gegn þýska liðinu. Síðasti leikur liðanna var 10. mars 2004 á Bernabeu þar sem Real vann 1-0 með marki frá Zinedine Zidane. Real hefur aðeins tapað fimm sinnum á heimavelli í Meistaradeildinni og þar af eru tvö tapanna gegn Bayern. Real Madrid er sigursælasta lið í sögu Evrópukeppninnar og hefur unnið Evrópukeppni meistaraliða/Meistaradeildina samtals níu sinnum og Evrópukeppni félagsliða tvisvar. Félagið heldur upp á 50 ára afmæli þáttöku sinnar í Evrópukeppni í ár. Bayern hefur unnið Evrópukeppni meistaraliða/Meistaradeildina fjórum sinnum - síðast árið 2001 með sigri á Valencia í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Þetta er níunda árið í röð sem Bayern er í Meistaradeildinni en ellefta árið í röð hjá Real Madrid.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Sjá meira