Engin áþreifanleg niðurstaða 19. febrúar 2007 12:15
Engin áþreifanleg niðurstaða fékkst eftir fund leiðtoga Ísraels og Palestínumanna með Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Jerúsalem í morgun. Rice segir viðræðum verða haldið áfram. Markmið fundarins var að koma friðarviðræðunum fyrir botni Miðjarðarhafs aftur af stað. Þetta var í fyrsta sinn sem Rice fundaði á sama tíma með þeim Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna. Öryggisgæsla í Jerúsalem var mikil. Fyrir fundin hafði Rice verið afar varfærin í yfirlýsingum sínum. Hún varaði við of miklum væntingum til fundarins og sagði þetta tilraun til að koma friðarferlinu í gang á ný. Hún hafði áður fundað með Abbas í Ramallah á Vesturbakkanum í gær þar sem skipan nýrrar þjóðstjórnar Hamas- og Fatah-liða var helsta umræðuefnið. Fulltrúar samtakanna hafa nú fimm vikur til að skipa í embætti og leita samþykkis þings þar sem Hamas-liðar eru í meirihluta. Rice hitti einnig Olmert í Jerúsalem í gær. Þar kom fram að Ísraelar ætluðu ekki að viðurkenna þjóðstjórn Palestínumanna ef þeir ætluðu ekki að viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis. Fyrir fundinn í morgun vildi Rice ekkert gefa upp um hvað yrði rætt og sagði einnig ólíklegt að það yrði gert eftir fundinn. Honum lauk á ellefta tímanum. Ekki var boðað til sameiginlegs blaðamannafundar en Rice ræddi þó við fréttamenn. Hún sagði Olmert og Abbas hafa lýst yfir vilja til frekari friðarviðræðna og tekið vel í mögleikann á tveggja ríkja lausn á deilum Ísraela og Palestínumanna. Rice sagði að leiðtogarnir myndu funda á ný innan tíðar.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira