Vilja aðgerðir í loftslagsmálum 16. febrúar 2007 08:00 MYND/AP
Leiðtogar ríkja heims eru einhuga um að ná þurfi samkomulagi hið fyrsta um viðbrögð við loftslagsbreytingum. Þetta var niðurstaða fundar sem haldinn var í borginni Washington í Bandaríkjunum og lauk í gær. Lagt var til að þróunarlönd ættu einnig að takmarka útblástur skaðlegra efna rétt eins og ríkari lönd. Í lokayfirlýsingu fundarins var tekið fram að ekki væri lengur hægt að draga í efa áhrif mannsins á loftslagsbreytingar. Fundurinn stóð yfir í tvo daga. Hann sóttu fulltrúar átta ríkustu ríkja heims ásamt fulltrúum Brasilíu, Kína, Indlands, Mexíkó og Suður-Afríku. Ákveðið var að vinna að því að setja upp alheimsmarkað fyrir koltvísýring. Á honum væri síðan hámarksmengunarkvóti og gætu lönd keypt og selt kvóta eftir þörfum. Niðurstöður fundarins, sem var óformlegur, eru ekki bindandi. Þær eru engu að síður taldar mikilvægar þar sem þær gætu myndað grundvöll að samkomulagi sem gæti komið í stað Kyoto-samkomulagsins en það rennur út árið 2012. Ákveðið var að stefna að því að arftaki Kyoto-samkomulagsins yrði tilbúinn ekki síðar en árið 2009.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Intuens höfðar mál á hendur landlæknisembættinu Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent Flugið er líflína milli byggða Grænlands Innlent Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Erlent Malbiksskemmdir gríðarlegar þetta árið Innlent Áttu að meta hvort þrettán ára væri nógu þroskuð til að veita samþykki Innlent Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann Innlent Ísland.is ekki fullnægjandi sem þjónustuvefur Innlent Fleiri fréttir Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Sjá meira