Vill engum spurningum svara 15. febrúar 2007 18:30 191 lét lífið í árásunum 11. mars 2004. MYND/AP
Réttarhöld hófust í morgun yfir 29 mönnum sem sakaðir eru um að bera ábyrgð á hryðjuverkunum í Madríd á Spáni í mars 2004 sem kostuðu 191 mannslíf. Einn sakborninganna neitaði að svara spurningum réttarins í dag. Búist er við að réttarhöldin standi yfir í marga mánuði enda er málið sérstaklega umfangsmikið. Ákæruskjölin eru yfir 100.000 blaðsíður og á vitnalistanum eru hundruð vitna og sérfræðinga ýmis konar. Í morgun var komið með sakborningana í brynvörðum bíl í réttarsalinn og þegar þangað var komið voru þeir fluttir í sérstaka stúku sem varin er með skotheldu gleri. Sjö af mönnunum 29 eru ákærðir fyrir morð á 191 manni og tilraun til morðs á þeim 1.755 sem særðust í sprengingunum í járnbrautarlestum höfuðborgarinnar 11. mars 2004, degi fyrir þingkosningarnar í landinu. Hinir eru ákærðir fyrir ólöglega meðferð sprengiefna og þátttöku í hryðjuverkastarfsemi. Saksóknar segja að hópurinn sem þeir stofnuðu hafi starfað sjálfstætt en tekið sér öfgakennda hugmyndafræði al-Kaída sér til fyrirmyndar. Flestir mannanna koma frá Marokkó, nokkrir eru Spánverjar og hinir svo frá öðrum löndum Mið-Austurlanda. Lögmenn þeirra segja að þeir muni allir neita sakargiftum og einn mannanna lýsti því raunar yfir í vitnastúkunni í morgun að hann myndi ekki svara neinum spurningum réttarins. Talsverð taugaspenna ríkir á Spáni vegna málsins og hefur viðbúnaðarstig vegna hryðjuverkaógnar hefur verið hækkað í landinu vegna þess.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira