Webber fer til Detroit 15. janúar 2007 22:00 Þessi mynd var tekin fyrir nokkrum mínútum af Chris Webber ásamt föður sínum, Mayce, þegar þeir horfðu á leik Detroit og Minnesota sem nú fer fram í Detroit. MYND/Getty
Miðherjinn Chris Webber hefur staðfest að hann muni ganga til liðs við Detroit Pistons í NBA-deildinni en búist er við að gengið verði formlega frá félagsskiptum hans úr Philadelphia síðar í þessari viku. Mörg félög voru á höttunum á eftir Webber, sem er einn reyndasti miðherji deildarinnar. Webber er uppalinn í Michican og er talið að nálægðin við fjölskyldu sína hafi átt einna stærstan þátt í ákvörðun leikmannsins, auk þess sem Detroit er af flestum talið lið sem er líklegt til afreka í NBA-deildinni. Webber hefur aldrei unnið NBA-titilinn og var ljóst að ef hann ætlaði að ná þeim áfanga áður en ferillinn er á enda þyrfti hann að semja við gott lið. Detroit kaupir upp það sem eftir var af eins og hálfs árs samningi Webber við Philadelphia en samkvæmt honum fær leikmaðurinn litla 43 milljónir dollara í launagreiðslur. "Með því að ganga til liðs við Detroit fæ ég tækifæri til að spila leikinn sem ég elska umkringdur af minni fjölskyldu. Ég gæti ekki hugsað mér það betra," sagði Webber í dag. Flip Saunders, þjálfari Detroit, var hæstaánægður með að klófesta kappann og telur hann henta vel í leikstíl liðsins. "Strákarnir í liðinu eru spenntir, ég er spenntur og allir í Detroit eru spenntir yfir komu hans. Við hlökkum til að fá hann," sagði Saunders.
Erlendar Íþróttir Körfubolti Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Íslenski boltinn Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Fleiri fréttir LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Sjá meira