Pinochet veittar nábjargirnar 3. desember 2006 13:38 Læknar Pinochet ræða við blaðamenn um ástand hans. MYND/AP
Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, er við dauðans dyr eftir alvarlegt hjartaáfall sem hann fékk í gær. Að sögn AP-fréttastofunnar hefur prestur veitt honum hinsta sakramentið. Pinochet hefur lengi verið heilsuveill þannig að fréttirnar um hjartaáfallið þurfa kannski ekki að koma mjög á óvart. Líðan hans er sögð stöðug en alvarleg. Pinochet var oddviti herforingjastjórnarinnar sem rændi völdum í Chile árið 1973 en hún ríkti allt til ársins 1990. Á meðan ógnarstjórn hans var við völd voru yfir 3.000 manns myrtir, eða látnir hverfa. Talið er að allt að 28.000 manns hafi sætt pyntingum og misþyrmingum leynilögreglu landsins. Margsinnis hefur verið reynt að draga Pinochet fyrir dóm en hann hefur aldrei þurft að svara fyrir mannréttindabrot sín þar sem lögfræðingum hans hefur ávallt tekist að sannfæra dómara um að hann sé of veikur til að þola réttarhöld. Að undanförnu hefur hann setið í stofufangelsi í Santíagó, höfuðborg Chile. Þegar hann varð 91 árs fyrir rúmri viku gaf hann út yfirlýsingu þar sem hann sagðist taka pólitíska ábyrgð á ofbeldinu sem var framið í stjórnartíð hans. Hann hefði hins vegar einungis verið knúinn af þrá til að gera Chile að stórkostlegu landi og koma í veg fyrir að það liðaðist í sundur.
Erlent Fréttir Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Vara við nálum í hrekkjavökunammi Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Fleiri fréttir „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Sjá meira