KFÍ fær atvinnuleyfi fyrir 2 leikmenn og þjálfara 27. september 2006 14:00 MYND/BB
Körfuknattleiksfélag Ísafjarðar hefur fengið atvinnuleyfi fyrir tvo leikmenn og þjálfara frá fyrrverandi ríkjum Júgóslavíu. Mennirnir koma frá Serbíu og Makedóníu en Vinnumálastofnun hafði áður synjað umsókn félagsins um atvinnuleyfi fyrir þá. Ingólfur Þorleifsson, formaður Körfuknattleiksfélags Ísafjarðar, segir að búið sé að senda vegbréfsáritanir þeirra út og þegar þær eru komnar í réttar hendur geta mennirnir komið til Íslands. "Við vorum ekki ánægðir með að vera synjað um atvinnuleyfi fyrir mennina. Körfuknattleiksfélag Íslands slóst í lið með okkur, þeir unnu málið með vinnumálastofnum og fundu lausn sem við erum mjög sáttir við," sagði Ingólfur Leikmennirnir sem nú eru á leið til liðs við félaga sína í KFÍ eru Bojan Popovic sem er 209 sentímeta hár skotbakvörður frá Serbíu. Hann spilaði með unglingalandsliði Serbíu árið 1999. Hinn leikmaðurinn heitir Pance Ilievski, sem er 193 sentímetra hár leikstjórnandi. Hann getur einnig leyst fleiri stöður á vellinum og hefur spilað með unglingalandsliði Makedóníu. Þjálfarinn er Borce Ilievski fyrrverandi unglingalandsliðsþjálfari Makedóníu. Hann er menntaður þjálfari og hefur um árabil rekið sinn eigin körfuboltaskóla. Á heimasíðu KFÍ kemur fram að miklar væntingar séu bundnar við leikmennina og þjálfarann og að þeirra sé beðið með mikilli eftirvæntingu.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið „Ég gæti ekki verið ánægðari“ Handbolti Dagur gæti gert það sem enginn þjálfari hefur afrekað í handboltasögunni Handbolti Lekur úr lofti og leik Hauka og Þórs frestað Körfubolti Leik lokið: KR - Keflavík 97-93 | Dýrmætur sigur fyrir Vesturbæinga Körfubolti Hreiðar Levý um skrif Víðis: Að líkja þessu við landráð er pistlahöfundi til skammar Handbolti Liverpool ótrúlega nálægt hundrað milljónum en náði þeim ekki Enski boltinn City mætir Real Madrid í umspilinu Fótbolti Hákon búinn að fórna miklu: „Ég stefni bara á meira og enn hærra“ Fótbolti Orri og Elías í einvígi um að mæta ensku stórliði Fótbolti Ósammála Alfreð: „Auðvitað er þetta bakslag“ Handbolti Fleiri fréttir Búbbluhausinn verður í banni Leik lokið: KR - Keflavík 97-93 | Dýrmætur sigur fyrir Vesturbæinga Lekur úr lofti og leik Hauka og Þórs frestað Keflvíkingar bæta við sig Nashville vill fá WNBA lið og nefna í höfuðið á frægum þjálfara Einn nýliði í landsliðinu Stólarnir svara með bombu á lokadegi gluggans „Ég er mjög vonsvikinn að við leyfum okkur þetta“ „Sem betur fer spilum við innanhúss” „Eins og formaðurinn sé að draga okkur inn á parketið“ Martin með tvöfalda tvennu í sigri Alba Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 87-108 | Stjarnan átti í litlum vandræðum með Grindavík Uppgjörið: ÍR - Álftanes 75-94 | Sjóðheitir heimamenn lentu á vegg Uppgjörið: Valur - Njarðvík 88-76 | Valsmenn sterkari í brakinu Uppgjörið: Höttur - Tindastóll 85-97 | Tindastóll eltir Stjörnuna áfram á toppnum eftir sigur á Egilsstöðum Lokaúrslit EuroLeague fara ekki fram í Evrópu GAZ-leikur kvöldsins: „Þið skuldið!“ Datt af hestbaki og er á batavegi: „Er rétt að skríða saman“ Yfirmaðurinn vill stytta leiki í NBA Enn bætast við feitir bitar: „Viss um að Tindastóll hugsar þetta öðruvísi núna“ Ýmislegt sem kom upp á: „Kornið sem fyllti mælinn“ „Markmiðið mitt er að enginn vill mæta okkur í fyrstu umferð úrslitakeppninnar“ Sóknarleikur í fyrirrúmi þegar Njarðvík lagði Hamar/Þór Segir hegðun Brynjars Karls „ekkert annað en ofbeldi“ Uppgjörið: Haukar - Grindavík 88-80 | Toppliðið endurheimti tveggja stiga forskotið Efast um ákvörðun sína að láta Bronny að spila 26 ár síðan Bandaríkjamaður lék fyrst á Íslandi eftir að hafa spilað í NBA Eignaðist barn á mánudegi og mætti á æfingu á föstudegi „Fokking aumingjar“ Stjarnan hreppti sjóaðan og sigursælan Slóvena Sjá meira
Uppgjörið: Höttur - Tindastóll 85-97 | Tindastóll eltir Stjörnuna áfram á toppnum eftir sigur á Egilsstöðum