Lögregla segir að einn maður hafi verið að verki 13. september 2006 21:59 Mikil hræðsla greip um sig meðal nemanna sem flúðu eins og fætur toguðu. Mynd/AP
Á annan tug framhaldskólanema í Montreal í Kanada særðust þegar samnemandi þeirra hóf skothríð í skólanum á fimmta tímanum í dag. Byssumaðurinn var felldur af lögreglunni. Skotárásin varð um klukkan fimm í dag að íslenskum tíma í Dawson framhaldskólanum í Montreal. Skelfingarástand myndaðist við skólann þegar nemendur flúðu í unnvörpum þegar byssumaðurinn hóf árás sína. Sjónarvottar segja að tuttugu skotum að minnsta kosti hafi verið skotið. Byssumaðurinn hafi byrjað skotárás sína fyrir utan skólann og haldið svo inn um aðaldyrnar. Andlit hans hafi verið sem steinrunnið og hann hafi ekki sagt orð þegar hann gekk inn í skólann. Fregnir fyrr í dag hermdu að byssumennirnir hefðu verið tveir en lögreglan hefur nú sagt að aðeins hafi verið um einn mann að ræða. Lögreglan hefur staðfest að hún hafi skotið manninn til bana. Lögreglan segir að um tuttugu manns hafi særst í árásinni. CNN fréttavefurinn sagði fyrr í kvöld að fjórir hefðu látist en lögreglan hefur þó ekki viljað staðfesta það. Stjórnendur á ríkisspítalanum í Montreal segja að komið hafi verið með þrettán særða nemendur þangað en sex þeirra séu alvarlega særðir. Felstir nemendur voru inni í kennslustofum þegar skothríðin hófst svo fáir voru á göngum skólans.
Erlent Fréttir Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Erlent Fleiri fréttir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Sjá meira