Blair ræðir ekki við Haniyeh 10. september 2006 19:45
Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, eru báðir tilbúnir til viðræðna um friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs. Tony Blair, forsætisráðherra, hefur á tæpum sólarhring fundað með helstu leiðtogum Ísraela og Palestínumanna og reynt að miðla málum. Blair hefur ekki legið á liði sínu frá því hann lagði af stað frá Lundúnum til Jerúsalems í gær. Hann átti þegar fund með Ehud Olmert, forsætisráðherra, í gærkvöldi þar sem þeir ræddu friðarferlið, ástandið í Líbanon og kjarnorkudeilu vesturveldanna við Írana. Á blaðamannafundi sagði Blair mikilvægt að koma friðarferlinu aftur í gang. Olmert tók í sama streng og sagðist tilbúinn til viðræðna við Abbas forseta. Mestu skipti þó að tryggja lausn Gilads Shalits, hermannsins sem er enn í haldi herskárra Palestínumanna á Gaza-svæðinu. Í morgun átti svo Blair fundi með Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, annars vegar og Amir Peretz, varnarmálaráðherra, hins vegar. Síðan hitti Blair fjölskyldur Shalits og tveggja annarra hermanna sem eru í haldi Hizbollah-skæruliða í Líbanon. Blair hélt því næst til fundar með Abbas í Ramallah á Vesturbakkanum. Á blaðamannafundi sagði Blair rétt að þær þjóðir heims sem hefðu skorið á samskipti við heimastjórn Palestínumanna tækju aftur upp samstarf við hana ef það tækist að mynda eins konar þjóðstjórn Hamas-liða og Fatah-hreyfingar Abbas. Forsetinn sagðist tilbúinn til viðræðna við Olmert. Heimsókn Blairs til Ramallah var mótmælt og voru Bretar meðal þeirra sem tóku þátt. Þeir sögðu ríkisstjórn Blair ekki styðja Palestínumenn nægilega vel. Síðdegis í dag átti svo Blair fund með Shimon Peres, varaforsætisráðherra Ísraels. Blair mun ekki funda með Ismail Haniyeh, forsætisráðherra í heimastjórn Hamas-liða.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Þjóð á krossgötum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira