Innlent

Eldur kviknaði í kjallaraíbúð

Úr myndasafni
Úr myndasafni MYND/Hari

Eldur kviknaði í kjallara íbúðarhúss við Hlíðarveg í Kópavogi um sexleytið í morgun. Tveir voru í íbúðinni og komust þeir út af sjálfsdáðum, auk fjögurra manna fjölskyldu sem býr á efri hæð hússins. Að sögn varðstjóra á vakt hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var eldurinn ekki mikill, en reykurinn sem af honum hlaust var talsverður. Íbúar kjallarans voru fluttir á slysadeild vegna gruns um reykeitrun. Húsið var reykræst og var slökkvistarfi lokið um klukkan sjö í morgun. Óvíst er um skemmdir af völdum eldsins. Eldsupptök eru ókunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×