Innlent

Mæta í vinnu hjá Varnarliðinu en hafa ekkert að gera

Íslenskir starfsmenn hjá Varnarliðinu mæta til vinnu dag hvern en hafa engin verkefni. Um 300 Íslendingar eru þar enn við störf þrátt fyrir að búið sé að fjarlæga tölvur, síma, verkfæri og jafnvel skrifborðsstóla.

Það var ekki mikið um að vera hjá starfsmönnum Officersklúbbsins þegar okkur bar að garði. Þar sem áður var rekið glæsilegt veitingarhús sitja starfsmenn eldhússins, drekka kaffi og spila á spil. Enda ekki mikið annað að gera þar sem engin starfssemi er í klúbbnum lengur.

Sama er uppi á teningnum annars staðar á svæðinu. 288 Íslendingar vinna enn hjá Varnarliðinu og munu gera það út september en þá rennur uppsagnarfrestur þeirra út.

Um helmingur þeirra Íslendinga sem enn eru við störf hjá Varnarliðinu eru eldri en 50 ára. Þeir eru uggandi um hvað tekur við. Sveinbjörn Sveinbjörnsson eða Bubbi eins og hann er oftast kallaður hefur unnið hjá Varnarliðinu í 30 ár og hann er ósáttur. Hann segir að flestir starfsmannanna hafi frétt það í gegnum sjónvarpið að segja ætti fólki upp.

Bubbi mætir eins og hinir Íslendingarnir í vinnu á hverjum morgni og þá er hellt upp á kaffi. Síðan er skrafað um hvað gera skuli þann daginn en þar sem engin verkfæri eru á staðnum gengur erfiðlega að finna verkefni. Nú hefur starfsmönnum verið sagt að taka alla sína persónulega muni, annars verði þeim fleygt. Bubbi er óhress með að þegar hann fer heim eftir vinnudaginn þá er leitað í bílnum hans. Það finnst honum súrt, að komið sé fram við sig eins og glæpamann, þegar það er ekkert eftir á svæðinu sem hægt er að ræna.

Bubbi segir mikinn missi vera af gamla vinnustaðnum enda staðurinn búinn að vera hans annað heimili í 30 ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×