Lægir ekki öldurnar í Verkamannaflokknum 7. september 2006 20:34
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að afsala sér ráðherraembætti og leiðtogahlutverki í Verkamannaflokknum innan árs en vill ekki tímasetja brotthvarf sitt nánar að sinni. Stjórnmálaskýrendur segja yfirlýsingu Blairs ekki lægja öldurnar í flokknum. Yfirlýsingu Blairs var beðið í ofvæni. Fyrst baðst Blair afsökunar fyrir hönd Verkamannaflokksins á því fjölmiðlafári sem hefði orðið síðustu daga í kringum væntanlega afsögn hans. Bresku blöðin hafa sum hver tímasett brotthvarf hans og því var þess að vænta að Blair myndi taka af allan vafa í dag. Hann sagðist hins vegar ekki ætla að tímasetja brotthvarf sitt en næsta flokksþing Verkamannaflokksins yrði hans síðasta sem leiðtogi flokksins og einnig næsta þing samtaka verkalýðsfélaga. Þetta þýðir að Blair lætur af embætti bæði sem leiðtogi flokksins og forsætisráðherra einhvern tíman á næstu tólf mánuðum. Ætla má að andstæðingar Blairs í flokknum sætti sig ekki við þetta svar forsætisráðherrans og segja stjórnmálaskýrendur að hann hafi í raun misst stjórn á eigin framtíð í stjórnmálum síðustu daga. Búist er við að áfram verði gerð krafa um nákvæmari tímasetningar og jafnvel talið að háttsettir þingmenn og ráðherrar íhugi afsögn til að þrýsta enn frekar á Blair. Gordon Brown, fjármálaráðherra, og líklegasti arftaki Blairs sagði í morgun að hann vildi að Blair tæki ákvörðun um brotthvarf á eigin forsendum. Ekki er þó fullvíst að hann eigi auðvelda leið í leiðtogasætið og ætla má að fleiri vilji í brúnna.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Fleiri fréttir Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira