Íranar vilja semja en ekki hætta að auðga úran 3. september 2006 12:31
Kofi Annan framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur eftir forseta Írans að Íranar séu reiðubúnir að semja um kjarnorkumál, en að þeir muni ekki hætta við að auðga úrans áður en samningaviðræður hefjast. Kofi Annan hitti Mahmoud Ahmadinejad í morgun. Afstaða Írana virðist ekkert hafa breyst; þeir eru reiðubúnir að semja en ekki að hætta auðgun úrans áður en samningaviðræður hefjast, eins og Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur krafist. Evrópusambandið vill gefa Írönum tvær vikur til að útskýra fyrirætlanir sínar en Bandaríkjamenn hafa þrýst á um að Íranir verði beittir refsiaðgerðum. Annan notaði líka tækifærið til að skamma Írana - og forsetann sérstaklega - fyrir að afneita helförinni. Nýlega héldu Íranar sýningu á teiknimyndum sem gera grín að helför gyðinga í síðari heimsstyrjöld og á fréttamannafundi í morgun sagði Annan að slíkar myndir væru ósmekklegar. Ein jákvæð niðurstaða fundarins í morgun var að Ahmadinejad staðfesti stuðning Írana við ályktun Öryggisráðsins um vopnahlé í Líbanon. Ályktunin gerir meðal annars ráð fyrir því að Íranir hætti að útvega Hisbolla samtökunum vopn.
Erlent Fréttir Mest lesið Ungar danskar konur taldar hafa látist af metanóleitrun Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins aftur handtekinn Erlent Eftirlitið skipar afurðastöðvum að stöðva aðgerðir tafarlaust Innlent Ný brú á Þjórsá talin kosta um fimmtung af verði Ölfusárbrúar Innlent Minnisblað þvert á niðurstöðu dómsins Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Óheppilegt að setja Jón í ráðuneytið Innlent Efast um skýringar Snorra á lækkandi fæðingartíðni Innlent Börn Pelicot biðla til föður síns um að játa brot sín að fullu Erlent Borgarlínuvagnar þeir einu sem fái að aka Fríkirkju- og Skothúsveg Innlent Fleiri fréttir Ungar danskar konur taldar hafa látist af metanóleitrun Þúsund dagar af grimmd og eyðileggingu Börn Pelicot biðla til föður síns um að játa brot sín að fullu Stjúpsonur norska krónprinsins aftur handtekinn Hjálpargögnum stolið af tæplega hundrað flutningabifreiðum Tugur lýðræðissinna í Hong Kong dæmdur í fangelsi Segist ætla að siga hernum á farand- og flóttafólk Segir Biden „hella olíu á eldinn“ Verða fyrst í heimi til að skattleggja losun frá búfénaði Stefnir í slag við samfélagsmiðla og sjónvarpsstöðvar Ferskvatnsforði jarðar ekki náð sér á strik eftir þráláta þurrka Grímuklæddir menn keyrðu niður hlið við Windsor Scholz ver símtal sitt við Pútín Leita einstaklinga sem hafa lifað óvenjulengi eftir greiningu Úkraínumönnum heimilt að beita langdrægum eldflaugum Felldu talsmann Hezbollah í miðborg Beirút Stefna lögreglu og leyniþjónustu vegna morðsins á Malcolm X Norsku skipagöngin á leið í útboðsferli Einar umfangsmestu loftárásir Rússa á orkuvinnviði Úkraínu Viss um að stríðinu muni ljúka fyrr en ella vegna kjörs Trump Tíu ungbörn létust og sextán særðust í eldsvoða á nýburadeild Rússar segja til hver annars líkt og á tímum Stalíns Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Næstu mánuðir skipta sköpum Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Þrýst á Scholz að víkja fyrir vinsælasta stjórnmálamanni landsins Sprengdu upp leynilega kjarnorkuvopnarannsóknarstöð í Íran Fangelsaðar fyrir að gagnrýna forsetann og klæðaburð Musk sagður hafa átt fund með sendiherra Íran Segja loftslagsráðstefnurnar ekki lengur þjóna tilgangi sínum Sjá meira