Engin ógn af kjarnorkuáætlun segir Íransforseti 26. ágúst 2006 13:15 Verksmiðjan í Arak í Íran. MYND/AP
Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, vígði í morgun verksmiðju þar sem þungavatns-kjarnaofnar verða notaðir sem hluti að kjarnorkuáætlun Írana. Forsetinn sagði þetta mikilvægan áfanga í áætluninni og lagði áherslu á að þjóðum heims, þar á meðal Ísrael, stafaði ekki ógn af kjarnorkuáætlun stjórnvalda í Teheran. Vesturveldin hafa gefið Írönum frest fram á fimmtudag í næstu viku til að hætta auðgun úrans. Ef þeir geri það ekki verði gripið til efnahagsþvingana og hafa sum ríki, þar á meðal Bandaríkjamenn, ekki útilokað valdbeitingu. Íranar gáfu í vikunni svar við tilboði vesturveldana um að hætta auðgun úrans gegn því að fá ýmsar ívilnanir. Svarið var ófullnægjandi að mati Bandaríkjamanna og fleiri ríkja en Íranar hafa boðist til að taka þátt í alvarlegum viðræðum í deilunni. Það var svo í morgun sem Ahmadinejad, Íransforseti, vígði verksmiðjuna í Arak, suð vestur af höfuðborginni Teheran. Vatn þar verður notað til að kæla kjarnaofn sem er í byggingu á sama svæði. Þar verður plútóníum framleitt sem hægt yrði að nota í gerð kjarnavopna. Bandríkjamenn segja Írana ætla sér að framleiða slík vopn á meðan Íranar fullyrða að þeir ætli sér að nota kjarnorku til orkuframleiðslu. Í gær sagði Manouchehr Mottaki, utanríkisráðherra Írans, að ekkert ríki gæti þvingað Írana til að hætta friðsamlegri kjarnorkuframleiðslu.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira