Hizbollah-samtökin ætla ekki að afvopnast 16. ágúst 2006 19:06
Hizbollah-samtökin ætla sér ekki að afvopnast heldur hyggjast þau einungis setja vopn sín í geymslur í bili. Ráðamenn fjölmargra þjóða vinna nú hörðum höndum að því að koma saman friðargæsluliði til að senda til Líbanons. Utanríkisráðherrar nokkurra ríkja komu til Beirút í morgun til að ræða samsetningu 13.000 manna friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna sem fyrirhugað er að senda til Líbanons á næstunni til að tryggja að átök brjótist ekki út á ný. Frakkar munu að líkindum leggja til stærstan hluta liðsins enda hafa tengsl þeirra við Líbanon lengi verið náin en einnig hafa ríki á borð við Finnland, Malasíu og Marokkó boðist til að senda menn á vettvang. Philippe Douste-Blazy, utanríkisráðherra Frakklands, hvatti líbönsku ríkisstjórnina í dag til að hraða flutningum á 15.000 manna liði sínu til suðurhluta landsins svo Ísraelsher geti tygjað sig aftur yfir landamærin. Hizbollah-samtökin segjast staðráðin í að sýna friðargæslum Sameinuðu þjóðanna og Líbana samvinnu og fagna auknum liðsstyrk í Suður-Líbanon. Það er talið til marks um að samtökin séu alls ekki á þeim buxum að afvopnast, eins og fyrri ályktanir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna kveða þó á um, heldur ætli þau í besta falli að setja vígbúnað sinn í geymslur. Íbúar átakanasvæðanna streyma nú úr öllum áttum aftur til baka. Sumir hafa þó einungis fundið rústir þar sem áður stóðu heimili þeirra og því er ekki um annað að velja en að búa í tjöldum.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira