Líbanar bjóðast til að senda herlið til suðurhlutans 9. ágúst 2006 08:07 Ísraelskur hermaður við mynd af Sheik Hassan Nasrallah, leiðtoga Hizbollah MYND/AP
Ísraelsk stjórnvöld ákveða í dag hvort herlið þeirra verður sent lengra inn í Líbanon til að berjast við Hizbollah-skæruliða. Frakkar og Bandaríkjamenn endurskoða nú uppkast sitt að ályktun sem lögð verður fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og miðar að því að binda enda á átökin í Líbanon. Frakkar og Bandaríkjamenn hlýddu á kröfur Líbana þegar þeir funduðu með sendifulltrúum Arababandalagsins í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í gær. Þar var gerð grein fyrir kröfu líbanskra stjórnvalda um að í ályktuninni yrði gert ráð fyrir tafarlausu vopnahléi. Einnig var greint frá því að Líbanar væru reiðubúnir að senda fimmtán þúsund manna herlið að landamærunum að Ísrael um leið og Ísraelsher hefði dregið herlið sitt frá Suður-Líbanon. Ekki er talið líklegt að miklar breytingar verði gerðar á ályktunartillögunni, sem var kynnt um helgina, þar sem Frakkar og Bandaríkjamenn eru því andvígir. Rússar, sem hafa neitunarvald í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, hafa lýst því yfir að þeir ætli ekki að samþykkja ályktun sem njóti ekki stuðnings Líbana. Það er því ljóst að eitthvað er í að niðurstaða fáist í málinu og alls óvíst hvenær verður hægt að greiða atkvæði um ályktunina í ráðinu. Ísraelskir hermenn hafa barist við skæruliða nærri landamærunum að Ísrael í nótt á meðan flugvélar Ísraela hafa látið sprengjum rigna yfir Suður-Líbanon. Mörg þúsund ísraelskir hermenn héldu að landamærunum að Líbanon í nótt. Öryggisráð ísraelska þingsins kemur saman til fundar í dag það sem búist er við að það samþykki áætlun sem felur í sér að herlið haldi lengra inn í Líbanon, að ánni Litani sem er um þrjátíu kílómetra inn í landi. Ísraelar hafa þó gefið í skyn að sú áætlun gæti verið lögð til hliðar ef líbönsk stjórnvöld senda hermenn til suðurhluta landsins.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira