Átök Ísraelshers og skæruliða Hizbollah-samtakanna ekki í rénun 18. júlí 2006 19:24
Hafi einhver búist við að átök Ísraelshers og skæruliða Hizbollah-samtakanna væru í rénun þá skjátlast hinum sama hrapalega. 30 létu lífið í árásum Ísraela á Líbanon í dag, þar á meðal níu manna fjölskylda frá þorpinu Aitaroun en sprengja hafnaði á húsi þeirra. Yfirmenn Ísraelshers útiloka ekki að landherlið ráðist inn í Líbanon þótt dregið hafi úr eldflaugaárásum Hizbollah yfir landamærin. 237 Líbanir og 13 Ísraelar liggja í valnum eftir að hildarleikurinn hófst en upptök hans má rekja til þess að Hizbollah-menn tóku tvo ísraelska hermenn í gíslingu í síðustu viku. Valgerður, utanríkisráðherra, er hugsi yfir ástandinu en á síður von á að íslensk stjórnvöld bregðist sérstaklega við. Friðargæslulið Sameinuðu þjóðanna hefur verið í Líbanon undanfarin ár en þörf er á mun öflugra liði til að hafa eitthvað að segja eins og sakir standa. Það er að minnsta kosti skoðun framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Vandamálið er hins vegar að ákvörðunin er í höndum öryggisráðsins og Bandaríkjamenn, sem þar hafa neitunarvald, eru taldir líklegir til að verja hagsmuni Ísraela sem telja ótímabært að senda þangað slíkt lið. Eins og sakir standa er því ekkert útlit fyrir að ófriðnum linni.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða miðjuna saman Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira