Indverjar reiðir Pakistönum 12. júlí 2006 19:15
Enn hefur enginn lýst yfir ábyrgð á hryðjuverkunum í Mumbai á Indlandi í gær, sem kostuðu 183 mannslíf. Samskipti Indverja og Pakistana hafa kólnað vegna ódæðanna. Íbúar Mumbai-borgar héldu áfram sínum daglegu störfum í morgun, tæpum sólarhring eftir að átta sprengjur sprungu í þéttskipuðum járnbrautarlestum borgarinnar. 183 létust og yfir 700 slösuðust í þessum verstu hryðjuverkum sem dunið hafa yfir borgina í hálfan annan áratug. Erfitt hefur reynst að bera kennsl á líkin og því bíða margir enn á milli vonar og ótta eftir að fá fregnir af ástvinum sínum. Aðrir fengu sínar verstu áhyggjur staðfestar. Enn er óvíst hverjir bera ábyrgð á tilræðunum en í morgun neituðu tvær af helstu hreyfingum aðskilnaðarsinna í Kasmír-héraði allri aðild að þeim. Indverskir ráðamenn hafa brugðist reiðir við þeirri skýringu Pakistana að deilur ríkjanna um Kasmír sé rót ódæðanna. Þeir segjaað í því felist að Pakistanar séu ekki tilbúnir til samvinnu við sig um uppræta hryðjuverk fyrr en ágreiningurinn um héraðið hefur verið leystur. Grunnt hefur verið á því góða með Pakistönum og Indverjum vegna Kasmír og hafa ríkin háð þrjú stríð vegna þess.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða miðjuna saman Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira