Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ekki samstíga 11. júlí 2006 12:26 Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna MYND/AP
Erfiðlega gengur að samræma stefnu innan Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, um hvernig skuli brugðist við eldflaugatilraunum Norður-Kóreumanna. Kínverjar vilja ekki ganga eins langt og Japanar og Bandaríkjamenn innan ráðsins. Ef Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreumanna, vonaðist til að hrista upp í alþjóðasamfélaginu með eldflaugatilraunum sínum í síðustu viku er greinilegt að það hefur heppnast. Eldflaugatilraunir Norður-Kóreumanna hafa verið fordæmdar um allan heim en ekki eru þó allir á eitt sáttir um til hvaða aðgerða eigi að grípa til þess að koma í veg fyrir frekari kjarnorkutilraunir Norður-Kóreumanna. Bandaríkjamenn, Frakkar og Bretar styðja tillögu Japana um að taka upp refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreumönnum. Tillagan þess efnis var þó ekki borin upp í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í gær eins og til stóð. Kínverjar og Suður-Kóreumenn vilja frekar sjá hógværari aðgerðir og kynnti sendiherra Kínverja Öryggisráðinu í gær tillögu þar sem ríki heims hvött til að standa ekki í viðskiptum við Norður-Kóreumenn með ýmsan tæknibúnað í stað þess að blátt bann verði lagt við slíkum viðskiptum eins og Japanir vilja. Talið er að hvorki Kínverjar né Rússar, sem hafa neitunarvald í Öryggisráðinu, muni samþykkja harðar refisaðgerðir gegn Norður-Kóreu. Þess í stað hallast Kínverjar að því að leysa málið með viðræðum við ráðamenn í Pyongyang og vilja þeir þrýsta á þá að setjast að samningaborðinu og ræða um kjarnorkuáætlun sína. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt að Bandaríkjamenn séu tilbúnir að reyna á þá leið áður en gripið verði til aðgerða.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða miðjuna saman Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira