Sex ára stúlka lætur lífið í loftárás 8. júlí 2006 18:45
Sex ára palestínsk stúlka lést í loftárás Ísraelshers nú undir kvöld. Það glittir þó í ljós í myrkrinu á Gasa-svæðinu, eftir að Ísraelsher dró liðsafla sinn á norðurhluta Gasa til baka í morgun.Á aðeins tveimur dögum hafa meira en þrjátíu Palestínumenn fallið á Gaza og minnst einn ísraelskur hermaður. Svæðið hefur verið eins og púðurtunna og í morgun gerðu Ísraelsmenn enn eina loftárásina og tveir Palestínumenn slösuðust lífshættulega. Þá brutust út skotbardagar á austurhluta Gaza í morgun og þrír Palestínumenn féllu í valinn.En þrátt fyrir allt virðist vera smá ljóstýra í myrkrinu. Þannig segist Ísraelsher hafa dregið liðsafla sinn frá norðurhluta Gaza og aftur yfir landamærin til Ísraels. Seint á miðvikudagskvöldið sendu Ísraelsmenn fjölda skriðdreka á þetta svæði, til þess að koma í veg fyrir árásir herskárra Palesínumanna en nú eru þeir semsagt farnir aftur til Ísraels og það ætti að slaka aðeins á spennunni sem verið hefur á svæðinu.Og það er fleira sem bendir til að eitthvað gæti þokast í friðarátt á næstunni. Ismayl Hanieh, forsætisráðherra Palestínu sagðist í dag vonast til að báðir aðilar myndu hætta árásum. Þetta er stefnubreyting af hálfu ráðherrans, sem hingað til hefur verið mjög herskár í málflutningi. Enn er þó deilt um hver eigi næsta leik.Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels segist ekki ætla að semja um frið fyrr en Palestínumenn sleppi hermanninum unga sem var rænt í lok júní.
Erlent Fréttir Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira