Innlent

Tjöldin fallin í tóbaksversluninni Björk

Tjöldin eru fallin í tóbaksversluninni Björk í Bankastræti eftir að Hæstiréttur komst að því að eiganda verslunarinnar sé heimilt að hafa tóbaksvörur sínar sýnilegar í versluninni. Eigandinn fagnar úrskurðinum og það gera fastakúnnar hans líka.

Sölva Óskarssyni, eiganda tóbaksverslunarinnar, var árið 2002 gert að hylja þær vörur sem hann seldi með tjöldum í samræmi við ný tóbaksvarnarlög. Tóbak og vörumerki tóbaks mátti sem sagt ekki vera sýnilegt viðskiptavinum.

Þessu undi Sölvi ekki sótti rétt sinn fyrir dómstólum ásamt tveimur tóbaksfyrirtækjum, en þess var meðal annars krafist að Sölvi fengi að hafa vörur sínar sýnilegar. Á það féllst Hæstiréttur í gær klukkan fjögur og um hálftíma síðar voru tjöldin rifin niður.

Í dómi Hæstaréttar segir að með algjöru banni við að sýna tóbak á sölustöðum hafi löggjafinn brotið gegn tjáningar- og atvinnufrelsisákvæðum stjórnarskrárinnar enda hafi löggjafinn ekki sýnt fram á nauðsyn þess að láta bannið ná til tóbaksverslana.

Sölvi er hinn kátasti með niðurstöðuna og segir hana ekki hafa komið sér á óvart. Hann segist hafa treyst lögmanni sínum, Hróbjarti Jónatanssyni, vel fyrir verkinu og hann hafi skilað því vel.

Aðspurður segir Sölvi að eftir eigi að reikna út af hversu miklum viðskiptum hann hafi orðið vegna sýningarbannsins. Fjölmiðlar geti kannski spurt markaðsfræðinga hver áhrifin séu af því að hafa vöru sem maður ætli að selja ekki til sýnis.

Sölvi hefur rekið verslunina síðastliðið 21 ár. Ljóst er að fleiri fagna úrskurði Hæstaréttar því Sölva hafa í gær og dag borist fjölmargar stuðningskveðjur. Hann segir fastakúnna hafa komið og glaðst með honum og þá hafi hann fengið heillaóskaskeyti og blómvendi senda. Nú geti viðskiptavinir hans séð þá vöru sem í boði sé í stað þess að hún sé falin á bak við tjald.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×