Gjaldeyrisjöfnuður bankanna jákvæður 10. mars 2006 17:02
Gjaldeyrisstaða bankanna var jákvæð um tæpa 83 milljarða króna í lok síðasta mánaðar. Þetta er hækkun um 21,7 milljarða króna á milli mánaða, samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands. Í hálf fimm fréttum KB banka segir að á síðustu misserum hafi jákvæð gjaldeyrisstaða bankanna vaxið umtalsvert en í lok október var gjaldeyrisjöfnuðurinn jákvæður um rúma 2 milljarða og hefur jákvæð staða hans því hækkað um alls 81 milljarða á síðastliðnum 4 mánuðum. Reglur Seðlabankans um gjaldeyrisjöfnuð bankanna, sem ætlað er að lágmarka gjaldeyrisáhættu þeirra, eru á þann veg að jöfnuður sérhvers banka má hvorki vera jákvæður né neikvæður um meira en 30% af eiginfjárhlutfalli bankans. Ákveðnar undanþágureglur gera bönkunum þó kleift að verja eiginfjárhlutföll gegn óhægstæðum gengisáhrifum. Við lok síðasta árs var eigið fé bankanna um 390 milljarðar króna sem þýðir að þeir hafi til samans mátt reka jákvæðan gjaldeyrisjöfnuð upp á 117 milljarða króna. Það er því ljóst að bankarnir eða hluti þeirra eru mjög nálægt þessu 30% hlutfalli nú og má því velta fyrir sér hvort einhver bankanna sé að nýta sér þau undanþáguákvæði sem eru á reglum Seðlabankans. Þetta er heldur ekki ólíklegt í ljósi þess að raungengi krónunnar hefur verið mjög sterkt síðastliðna mánuði sem hefur aukið hættu á veikingu hennar, að því er segir í hálf fimm fréttum KB banka.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Viðskipti innlent Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Viðskipti innlent Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Viðskipti innlent 25 sagt upp í fiskvinnslu Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Viðskipti innlent „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Viðskipti innlent Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Viðskipti innlent Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Samstarf „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Gengi Alvotech aldrei lægra 25 sagt upp í fiskvinnslu „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Gengi Alvotech hrynur „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Alvotech fær ekki leyfi fyrir hliðstæðu Simponi að svo stöddu „Ástand sem við getum ekki búið við til lengdar“ Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Tiltölulega lítil áhrif af breytingum Seðlabankans Telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið Tango Travel hættir vegna gjaldþrots Play Of snemmt að segja hvort vaxtadómurinn geri lán dýrari eða ódýrari Töldu hættu stafa af einkaþotufyrirtækinu sem var svipt starfsleyfi Gervigreindarknúið snjallsiglingarkerfi hlaut Nýsköpunarverðlaunin Högnuðust um tæpa sjö milljarða Tilkynna breytingar á lánaframboði Sverrir Einar söðlar um og selur Þrastalund Leigjendum muni fjölga um fimm þúsund fram til 2030 Bein útsending: Nýsköpunarþing 2025 - Ísland í stóru myndinni Bjarni Geir Alfreðsson matreiðslumaður látinn Færir sig í Borgartúnið eftir stutta dvöl hjá ÍSÍ Verðbólguþróunin áhyggjuefni Greiðir sér út allt að fimmtíu milljónir Verðbólga ekki meiri síðan í janúar Sjá meira