Verðbóla eykst um 1,12 prósent 10. mars 2006 09:28 Hagstofa Íslands er við Borgartún í Reykjavík. Fréttablaðið/Stefán
Verðbólguvísitalan hækkaði um 1,12 prósent milli febrúar og mars samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Hækkunin er heldur meiri en greiningardeildir bankanna höfðu spáð. Verðbólga án húsnæðis hækkaði um 1,17 prósent frá því í febrúar. Vísitala neysluverðs í mars 2006 er 252,3 stig og án húsnæðis er vísitalan 233,6 stig. Greiningardeildir bankanna spáðu því að hækkun verðbólgunnar yrði á bilinu 0,7 til 0,9 prósent. Í Vegvísum greiningardeildar Landsbankans í gær er veiking krónunnar síðustu daga auka, að öllu óbreyttu, líkur á hærra verðlagi þegar frá líður. „Vetrarútsölum er nú víðast lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 16,9% (vísitöluáhrif 0,72%). Verð á eigin húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 1,1% (0,19%)," segir Hagstofa Íslands. Verðbólga síðustu tólf mánaða nemur 4,5 prósentum, en sé verð á húsnæði ekki tekið með í reikninginn nemur hækkunin um 1,8 prósentum. Síðustu þrjá mánuði hefur verðbólga aukist um 1,4 prósent, en það segir Hagstofan jafngilda 5,6 prósenta verðbólgu á ári, eða 2,8 prósenta verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis. „Vísitala neysluverðs í mars 2006, sem er 252,3 stig, gildir til verðtryggingar í apríl 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.982 stig fyrir apríl 2006," segir Hagstofan.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Viðskipti innlent Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Neytendur Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Viðskipti innlent Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Fleiri fréttir Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Sjá meira