Straumi eignaður stór hlutur í Landsbankanum fyrir mistök 14. október 2006 00:01 Höfuðstöðvar Landsbankans Straumur var ranglega skráður fyrir 6,34 prósenta hlut í bankanum.
Straumi-Burðarási hefur undanfarna daga verið eignaður yfir sex prósenta tilkynningarskyldur hlutur í Landsbankanum fyrir mistök. Fjárfestingarbankinn átti 1,45 prósent í Landsbankanum hinn 5. október en í gærmorgun var hann skráður fyrir 6,34 prósentum, samkvæmt hluthafalista sem birtur var á heimasíðu Landsbankans. Það hefði nægt Straumi til að vera annar stærsti eigandinn á eftir Samson eignarhaldsfélagi, félagi Björgólfsfeðga. Sex prósenta hlutur í Landsbankanum er metinn á tæpa nítján milljarða króna. Þær upplýsingar fengust hjá Straumi að um villu hefði verið að ræða í hluthafaskrá Landsbankans sem hefur verið leiðrétt. Félagið vildi ekki gefa upp nákvæman eignarhlut sinn í bankanum. Samkvæmt upplýsingum frá Verðbréfaskráningu Íslands (VS) er það þeirra aðila sem eiga með sér viðskipti að tilkynna um þau til Verðbréfaskráningar. Hluthafaskrá Landsbankans og annarra skráðra félaga er keyrð í gegnum kerfi VS og því fara breytingar á eignarhaldi í félögum ekki í gegnum útgefandann sjálfan nema hann hafi milligöngu um viðskiptin. Svo var ekki í þessu tilfelli eftir því sem næst verður komist. Nokkrar breytingar hafa orðið á lista yfir stærstu eigendur í Landsbankanum að undanförnu. Fjárfestingafélagið Sund og Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar eru komin í hóp tíu stærstu hluthafa bankans en félögin halda hvort um sig utan um tæplega 1,5 prósenta hlut. FL Group á nú orðið eitt prósent hlutafjár í Landsbankanum og hefur bætt við sig bréfum að undanförnu. eggert@frettabladid.is
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Atvinnuleysi fimm prósent í júní Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Sjá meira