Innlent

Ungt fólk of kærulaust

Flestir nýsmitaðra alnæmissjúklinga á Norðurlöndunum eru ungir karlmenn, hommar eða tvíkynhneigðir. Ingi Rafn Hauksson, formaður alnæmissamtakanna, segir áberandi kæruleysi hérlendis hjá ungu fólki. Hann hefur áhyggjur af því að Ísland rati sömu leið ef ekkert verður að gert. Þetta kom fram í sjónvarpsfréttum NFS í gær.

Ingi segir að í kynningarstarfi í skólum landsins fari ekki á milli mála að þekkingu ungs fólks á sjúkdómnum og afleiðingum hans sé verulega ábótavant.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×