Innlent

Kókaínmaður laus úr gæslu

Maður sem grunaður er um að hafa reynt að smygla inn tveimur kílóum af kókaíni í félagið við fjóra aðra losnaði úr gæsluvarðhaldi í gær. Áður hafði 18 ára stúlka, sem kókaínið fannst á, verið leyst úr haldi.

Það var 9. ágúst sem par var handtekið í Leifsstöð. Á stúlkunni fundust um tvö kíló af kókaíni. Þrennt, tveir menn og ein stúlka, voru svo handtekin í kjölfarið. Þrjú þeirra sitja enn í gæsluvarðhaldi fram yfir mánaðarmót. Samtals eru 11 í gæsluvarðhaldi nú, tveir fyrir ofbeldisverk en níu vegna fíkniefnabrota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×