Innlent

Erum efnislega sammála

Gylfi Arnbjörnsson
Gylfi Arnbjörnsson

Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, segir að málflutningur ASÍ sé í raun efnislega samhljóða formönnum sautján aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands.

Formennirnir lýstu því yfir í síðustu viku að málflutningur ASÍ um afnám tolla og frjálsan innflutning landbúnaðarafurða væri ekki í anda þessara aðildarfélaga. Gylfi bendir á að ASÍ hafi lagt til öflugar mótvægisaðgerðir sem nemi sex milljörðum króna.Formennirnir hafi hins vegar ekki aflað upplýsinga um það sem starfsmenn í Reykjavík séu að gera.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×