Vopn gerð upptæk í borginni 27. ágúst 2006 07:15 Við Yfirgefna bækistöð Rauða krossins Drengur situr við skilti sem bannar vopnaburð. Holur eftir byssukúlur sjást á skiltinu og í veggnum á bakvið. MYND/AP
Lögreglan í Kólombó, höfuðborg Srí Lanka, fann í gær vopnabúr í húsi nálægt alþjóðaflugvelli borgarinnar. Sautján manns voru handteknir og segir lögreglan fólkið hafa haft árás í hyggju. Lagt var hald á átta handsprengjur, tvær stærri sprengjur, riffil og skotfæri. Þetta er í annað skipti á skömmum tíma sem sprengjur finnast í borginni, því síðastliðinn þriðjudag náðu sprengjusérfræðingar að aftengja stóra sprengju, sem hafði verið komið fyrir í körfu reiðhjóls við fjölfarna verslunargötu. Stjórnarherinn gerði loftárás í gær á svæði tamíla, þriðja daginn í röð. Talsmaður hersins sagði að ráðist hefði verið á bækistöð Tamílatígra, sem þeir hefðu notað til skotárása yfir á svæði Srí Lanka-manna. Á Jaffna-skaga létust sex hermenn stjórnarhersins í gær eftir að hafa stigið á jarðsprengju í norðurhéruðunum. Sakaði talsmaður hersins Tígrana um að hafa komið jarðsprengjum fyrir á skaganum eftir að þeim hafi mistekist að ná þar yfirráðum. Ekki reyndist unnt að bera ummælin undir Tamílatígrana í gær. Associated Press hefur eftir norrænu eftirlitssveitinni að Tamílatígrarnir hafi sleppt lögreglumanni úr haldi til að sýna vott um velvild, en maðurinn var fangi þeirra í ellefu mánuði.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira