Saddam í hungurverkfalli 22. júlí 2006 08:00 Saddam Hussein
Verjendur Saddams Hussein í Írak vara við því að heilsu hans muni hraka, haldi hann áfram í hungurverkfalli sínu í fangelsinu. Þeir segja bandaríska hernámsliðið bera alla ábyrgð bíði heilsa hans tjón af. Þeir hvetja einnig bæði Sameinuðu þjóðirnar og fleiri stofnanir, jafnt alþjóðlegar sem arabískar, til að sjá til þess að hann hljóti réttláta dómsmeðferð. Saddam hefur neitað að borða frá því 7. júlí síðastliðinn. Þrír aðrir sakborningar í réttarhöldunum hafa verið í hungurverkfalli frá sama tíma. Bandaríkjamenn, sem hafa Saddam í haldi, segja að hann sé við góða heilsu og daglega sé fylgst með heilsufari hans í fangelsinu. Verjendurnir taka undir kröfur Saddams um að rannsókn verði gerð á morðinu á Khamis al-Obeidi, einum lögfræðinga hans, en al-Obeidi var þriðji lögfræðingurinn úr verjendahópi Saddams sem var myrtur frá því réttarhöldin hófust þann 19. október síðastliðinni. Jafnframt birtu verjendurnir bréf frá Saddam til bandarísku þjóðarinnar þar sem hann segir bandarísk stjórnvöld enn ljúga að þjóð sinni. Hann segir einnig að stríðið í Írak hafi skaðað „virðingu og álit“ Bandaríkjanna í heiminum.
Erlent Mest lesið Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Fleiri fréttir Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Fúlsaði við þriggja forseta fundi Sjá meira