KB banki hækki sjálfur vexti 4. nóvember 2005 07:15
Búast má við að vextir á íbúðalánum Íbúðalánasjóðs hækki í árslok en Hallur Magnússon, sviðsstjóri þróunarsviðs hjá Íbúðalánasjóði, segir samt nær fyrir KB banka að hækka vexti á sínum lánum. Þenslan sé jú sprottin upp úr óheftum lánum bankanna. Steingrímur Arnar Finnsson, hagfræðingur hjá Greiningardeild KB banka, sagði í fréttum í gær að Seðlabankanum hefði ekki tekist að stemma stigu við verðbólgunni. Gera mætti ráð fyrir að stýrivextir myndu hækka í desember og á næsta ári en til viðbótar mætti gera ráð fyrir hækkun vaxta hjá Íbúðalánasjóði. Hallur Magnússon, sviðsstjóri þróunarsviðs hjá Íbúðalánasjóði, segir að sjóðurinn geti ekki hækkað eða lækkað vexti að vild. Núverandi vextir upp á 4,15 prósent byggi á síðasta útboði að viðbættu 0,6 prósenta álagi og lán sjóðsins séu eingöngu veitt til kaupa á húsnæði. Lán KB banka með 4,15 prósenta vöxtum sé ekki eingöngu veitt til kaupa heldur líka í endurfjármögnun þannig að réttast væri að KB banki riði sjálfur á vaðið og hækkaði vexti. Hallur segir hinsvegar ljóst að vextir Íbúðalánasjóðs muni hækka eitthvað í lokaútboði sjóðsins fyrir áramót en ekki sé vitað hversu mikið þeir muni hækka eða hvenær útboðið muni fara fram.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Erlent Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Erlent Segir Heimildarmenn hafa njósnað um son hans Innlent „Dapurlegt að stjórnmálafólk loki augunum fyrir stöðunni“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Allt að tuttugu stiga hiti Veður Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Innlent Nýtt myndefni: Sparkað í blóðmerar á íslenskum sveitarbæ Innlent Myndaveisla: Grindvíkingar komu saman ári eftir rýmingu Innlent Björguðu villtum ferðamönnum í Fljótsdal Innlent Fleiri fréttir Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Segir Heimildarmenn hafa njósnað um son hans Myndaveisla: Grindvíkingar komu saman ári eftir rýmingu Björguðu villtum ferðamönnum í Fljótsdal „Dapurlegt að stjórnmálafólk loki augunum fyrir stöðunni“ „Erfiðir tímar iðulega undanfari betri tíma“ „Ég skildi ekki konuna eina eftir heima í þessum látum“ Þversagnakennt hve lítið sé talað loftslagsmál Sterkar systur á Selfossi keppa á heimsmeistaramóti Nýtt myndefni: Sparkað í blóðmerar á íslenskum sveitarbæ Sparkað í blóðmerar og eitt ár frá rýmingu Grindavíkur Í sjálfheldu á eigin svölum Nýtt líkan nýjung á Íslandi: VG og Sósíalistar nái ekki á þing og óvissa um Miðflokk Maðurinn er fundinn Stöðvun megi rekja til klúðurs og skorts á fjármagni Ótryggðir bændur Ár frá rýmingu í Grindavík: „Með mestu hamförum sem riðið hafa yfir Ísland“ Kom verðmætum fyrir í röngum bíl sem hvarf á brott Ár frá mestu hamförum síðari tíma og útboðshlé hjá Vegagerðinni Dó fjórum árum eftir að hún hvarf Stærsti skjálftinn við Öskju frá ársbyrjun 2022 Kyrrstaða í vegaframkvæmdum, sigur Trumps og kosningabaráttan framundan Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Ætlar 1750 kílómetra á þrektækjum á einni viku í minningu vina Baráttan hafin á TikTok: Traktor í Skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Engin miðlæg skráning slysa í ferðaþjónustu Yazan og fjölskylda leita að nýju húsnæði Úrbætur í kjölfar slyss á Breiðamerkurjökli og vikulöng þrekraun Grunaður um sölu fíkniefna og brot á útlendingalögum Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Sjá meira