Sport

Ferguson vill hafa Keane í liðinu

Sir Alex Ferguson sagði í viðtali í gær að hann vildi hafa Roy Keane í liði sínu eins lengi og hann gæti reimað á sig skóna og hefur ekki gefið upp alla von um að halda fyrirliða liðsins hjá félaginu lengur en út þessa leiktíð. Roy Keane hefur látið í veðri vaka að hann fari frá Manchester United í sumar, en Ferguson hefur undirstrikað mikilvægi Keane fyrir liðið með því að breyta leikkerfi liðsins til að geta haft hann áfram og vill umfram allt ekki missa hann. "Ég breytti leikskipulaginu til að geta haft Roy í liðinu. Ég get ekki ætlast til þess að hann sé að hamast vítateiga á milli lengur, en ég get ómögulega verið án leikskilnings hans, reynslu og leiðtogahæfileika. Ég vil hafa Roy Keane á miðjunni hjá mér svo lengi sem hann getur reimað á sig skóna," sagði Ferguson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×