Sport

Wenger saknar Vieira

NordicPhotos/GettyImages
Arsene Wenger hefur nú í fyrsta sinn viðurkennt að kannski hafði það ekki verið mjög góð hugmynd að selja Patrick Vieira til Juventus í sumar, en bendir á að liðið hafi verið einstaklega óheppið með meiðsli. "Við höfum misst menn eins og Thierry Henry, Ashley Cole og Sol Campbell í meiðsli í byrjun tímabils og það hefur ekki hjálpað okkur, en ef liðið vinnur ekki, er ljóst að maður er að gera mistök einhversstaðar. Maður getur ekki séð svona lagað fyrirfram, en ég veit nú ekki betur en að Vieira sé meiddur hjá Juventus núna" sagði Wenger og bætti við að hann treysti ungu strákunum sínum fullkomlega til að koma liðinu í fremstu röð á ný - en útilokaði ekki að kaupa stórt nafn í nóvember ef góður leikmaður yrði á lausu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×