Sport

Englendingar komnir yfir

Englendingar eru komnir yfir gegn Austurríkismönnum í undankeppni HM, en leikurinn fer fram á Old Trafford í Manchester. Það var Frank Lampard sem skoraði markið úr vítaspyrnu á 25. mínútu eftir að brotið hafði verið á Michael Owen í teignum. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Í sama riðli vann Wales góðan 3-2 sigur á Norður-Írum í sama riðli, en það var Ryan Giggs sem skoraði sigurmark Wales á 61. mínútu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×