Sport

Warnock stjóri mánaðarins

NordicPhotos/GettyImages
Neil Warnock hjá Sheffield United hefur verið kjörinn knattspyrnustjóri septembermánaðar í ensku fyrstu deildinni. United hefur þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar og liðið vann m.a. fimm leiki í röð í mánuðinum. "Það skyggir nokkuð á þennan heiður að hafa tapað fyrir Reading um síðustu helgi, en ég er engu að síður ánægður að taka á móti nafnbótinni," sagði Warnock. "Ég vil ekki síður eigna félaginu og stuðningsmönnum liðsins þennan heiður, því þeir hafa stutt vel við bakið á liðinu," sagði hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×