Sport

KRingar Reykjavíkurmeistarar

KRingar tryggðu sér í kvöld Reykjavíkurmeistaratitilinn í körfubolta þegar þeir lögðu meistarana frá því í fyrra, ÍR, 87-59 í Vesturbænum. KR var yfir í hálfleik, 37-27. Pálmi Sigurgeirsson var stigahæstur í liði KR og skoraði 21 stig og hitti mjög vel. Ashley Champion skoraði 16 stig og hirti 10 fráköst í liði KR og Skarphéðinn Ingason átti frábæran leik með 9 stig, 8 fráköst og 9 stoðsendingar. Theo Dixon var stigahæstur í liði ÍRinga með 21 stig, en þurfti til þess 25 skot. Ómar Sævarsson átti fínan leik hjá ÍR og skoraði 12 stig, hirti 13 fráköst og varði 5 skot.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×