Sport

Góður sigur hjá íslensku stelpunum

Íslenska U19 ára stúlknalandsliðið burstaði Georgíu 7-0 í undankeppni HM sem fram fer í Bosníu-Hersegóvínu. Katrín Ómarsdóttir og Greta Mjöll Samúelsdóttir skoruðu tvö mörk hvor og María Kristjánsdóttir, Elísa Pálsdóttir og Guðný Björk Óðinsdóttir sitt markið hver. Ísland mætir gestgjöfunum, Bosníu-Hersegóvínu, á morgun sem töpuðu fyrir Rússum í fyrsta leik, 6-0. U17 ára landslið drengja steinlá hins vegar fyrir Tékkum í undankeppni EM 4-1 sem er einnig haldin í Bosníu-Hersegóvínu. Aron Gunnar Einarsson skoraði eina mark Íslands sem náði forystunni í leiknum. Ísland er þar með úr leik en Tékkar og Svíar komust áfram í þessum riðli en Íslandi hefði dugað jafntefli gegn Tékkum til að hirða af þeim 2. sætið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×