Sport

McClaren ánægður með sína menn

NordicPhotos/GettyImages
Steve McClaren, stjóri Midllesbrough, var ánægður með sína menn eftir sigurinn í Evrópukeppni félagsliða í gær og sagði þá hafa klárað verkefnið sem hann lagði upp með þegar þeir lögðu gríska liðið FC Xanthi 2-0. "Við ætluðum fyrir það fyrsta að halda hreinu og reyna að skora tvö mörk og það hafðist hjá okkur. Auk þess gat ég hvílt nokkra menn og við sluppum við rauð spjöld og meiðsli, svo að ég get ekki verið annað en sáttur. Það hefði verið í góðu lagi að fá eitt mark í viðbót, en ég tek það sem við fengum í gær. Það hefur sýnt sig að hlutirnir eru ekki gefnir í þessari keppni, spyrjið bara Bolton og Everton. Það er ekki auðvelt að fara til Grikklands og ná góðum úrslitum, en ég held að við séum í ágætum málum," sagði McClaren.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×