Vísitalan lækkaði enn einn daginn 14. september 2005 00:01
Gengi hlutabréfa í Kauphöllinni snarlækkaði í dag. Úrvalsvísitalan hefur lækkað þrjá daga í röð. Sérfræðingur í greiningardeild Íslandsbanka telur engar ástæður til að hafa áhyggjur af þróuninni. Strax í morgun lækkuðu hlutabréfin í flestum fyrirtækjum Kauphallarinnar verulega. Lækkunin gekk aðeins að litlu leyti til baka í lok dags og þegar upp var staðið hafði úrvalsvísitalan lækkað um 2,17%. Mest lækkuðu bréf í Icelandic Group en bréf í Landsbankanum, Burðarási og Marel lækkuðu einnig verulega. Alla þessa viku hefur úrvalsvísitalan lækkað jafnt og þétt. Ástandið er þó ekkert óeðlilegt að mati sérfræðinga. Atli B. Guðmundsson hjá greiningardeild Íslandsbanka segir að eftir skarpar hækkanir undanfarið sé eðlilegt að nú komi lækkun og það þrjá daga í röð. Samtals er þetta lækkun upp á 5%. Hann segir líklegt að lækkunin haldi jafnvel áfram í nokkra daga, en síðan sjái stórir fjárfestar sér hag í að kaupa að nýju. Heildarlækkun úrvalsvísitölunnar fyrstu þrjá daga vikunnar nemur 4,9% en af einstökum félögum hafa bréf í Burðarási lækkað mest, eða um 6,3%. Þá hafa bréf í Bakkavör, Íslandsbanka og Landsbankanum lækkað um meira en fimm prósent það sem af er vikunni. Atli telur skýringuna að finna í varúðarorðum um efnahagsmál undanfarna daga, bæði fréttir um efnahagsumhverfið og umræðurnar sem spunnust í kjölfarið. Aðspurður hvort þetta sé eitthvað sem þurfi að hafa áhyggjur af segir Atli að sér finnist þetta mjög eðlilegur hluti af virkum markaði, hann geti bæði sinnt tímabilum þar sem séu hækkanir og þegar það eru lækkanir.
Innlent Viðskipti Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira