Sport

Eiður byrjar inni á gegn Arsenal

Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Chelsea sem mætir Arsenal í dag kl. 15 og leikur hann á miðjunni ásamt Frank Lampard og Claude Makelele. Nýjasti leikmaður félagsins og sá dýrasti, Mickael Essien er á varamannabekknum en hann var í vikunni keyptur frá Lyon í Frakklandi fyrir 26 milljónir punda. Hjá Arsenal er einnig nýr leikmaður í byrjunarliðinu, Aleksander Hleb, sem kom frá Stuttgart í sumar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×