Sport

Arsenal hætt við að kaupa Viera

Úrvalsdeildarlið Arsenal hefur samkvæmt nýjustu tíðindum frá Englandi hætt við að festa kaup á markverðinum Sebastien Viera frá Úrugvæ, eftir að kappinn stóðst ekki læknisskoðun hjá félaginu. Þetta eru Arsenal slæm tíðindi, því Jens Lehmann er í banni í fyrstu tveimur meistaradeildarleikjum liðsins í leiktíðinni og Manuel Almunia er enn að jafna sig af meiðslum. Því gæti svo farið að unglingaliðsmaður þyrfti að standa milli stanganna hjá liðinu í fyrstu leikjum liðsins í Meistaradeildinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×