Sport

Newcastle vill Owen

Real Madrid hefur gefið það út að Newcastle United sé búið að staðfesta áhuga sinn á framherjanum Michael Owen, sem talið er að eigi ekki eftir að eiga sjö dagana sæla í herbúðum spænska liðsins á næstu leiktíð vegna gríðarlegrar samkeppni. "Newcastle er eina enska liðið sem hefur sýnt Owen alvöru áhuga, en við vitum þó af áhuga fleiri liða á honum," sagði talsmaður Real, sem auðsjáanlega ætlar sér að reyna að fá gott verð fyrir enska landsliðsmanninn ef það ætlar sér að selja hann. Owen sjálfur hafði ætlað sér að berjast um sæti í liði Real, en þær áætlanir breyttust eftir að Madrid keypti enn einn framherjann á dögunum og nú er talið að hann vilji helst snúa aftur til Englands til að eiga möguleika á sæti í enska landsliðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×