Sport

Tryggði Víkingum sigur á 90. mín.

Einn leikur fór fram í 1 deild karla í kvöld en þá hófst 13. umferð. Víkingur úr Reykjavík vann nauman sigur á KS, 2-1. Halldór Jón Sigurðsson kom Víkingi yfir beint úr aukaspyrnu á lokasekundu fyrri hálfleiks. Ragnar Hauksson jafnaði úr fyrir Siglfirðinga úr vítaspyrnu en Einar Oddsson tryggði heimamönnum sigur þegar 90 mínútur sléttar voru komnar á klukkuna. Víkingar er þar með komnir í 28 stig í 2. sæti deildarinnar, sjö stigum á undan KA sem er í 3. sæti og á leik til góða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×