Sport

Coco í viðræðum við Newcastle

Francesco Coco, fyrrverandi leikmaður AC Milan og Barcelona, á nú í viðræðum við Newcastle United. Coco, sem leikur sem vinstri bakvörður, hefur leikið á annan tug landsleikja fyrir Ítalíu. Graeme Souness, knattspyrnustjóri Newcastle United, vonast eftir því að geta notað Coco í fyrsta leik tímabilsins. "Vonandi nást samningar við Coco í tíma því hann er leikmaður sem styrkir lið okkar mikið. Hann hefur reynslu og hugarfar sem nýtist vel í okkar unga liði. Ungu leikmennirnir geta lært af honum, og hann getur lært af þeim."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×