Nemendur njóta ekki sannmælis 22. febrúar 2005 00:01
Margir nemendur njóta ekki sannmælis í skriflegum prófum, segir formaður Félags grunnskólakennara, en félagið vill að samræmd próf verði lögð niður í núverandi mynd. Á aðalfundi Félags grunnskólakennara var samþykkt ályktun þess efnis að leggja ætti niður samræmdu prófin í núverandi mynd þar sem þau samræmdust ekki lengur einstaklingsmiðuðu námi og framtíðarsýn fræðsluyfirvalda. Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, segir að í umræðum á fundinum hafi komið fram að mörgum þætti prófin orðin of stýrandi í skólastarfinu og farin að hafa of mikil áhrif á daglegt skólastarf, jafnvel þannig að sumir nemendur nái ekki að njóta sín í náminu. Spurður hvort túlka megi þetta þannig að verið sé að reyna að hlífa veikasta hlekknum í keðjunni, en þeir sem hugsanlega geti betur fái þá ekki að njóta sín, segir Ólafur það ekki rétt. Það sé frekar verið að stuðla að því að allir njóti sannmælis og geti sýnt hvað í þeim búi. Ólafur segir samræmdu prófin ekki tæki til samanburðar á skólum, til þess séu þau ekki besti mælikvarðinn og önnur tæki sé betur til þess fallin. „Þessi samanburður er ekki að tilstuðlan skólafólks heldur miklu frekar eitthvað sem fjölmiðlamenn hafa verið að draga fram til að reyna að bera saman skóla,“ segir Ólafur.
Fréttir Innlent Skóla - og menntamál Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira